Var rétt í þessu að hlusta á fyrrverandi borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins, Markús Örn Antonsson, útskýra það hvers vegna Helga Vala fékk ekki vinnu hjá fréttastofu sjónvarpsins (hún sótti reyndar um vinnu á fréttastofu útvarpsins). Hann bar pólitíska fortíð sína saman við Helgu Völu og greinilegt er að Markús álítur Helgu Völu vera innsta kopp í búri í pólitíkinni.
Það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að fórna miklu fyrir ekki neitt. Helga Vala var langt í frá einhver trúnaðarmaður flokksforystu VG og vinir hennar eru fæstir í þeim flokki. Ég persónlulega er ótrúlega lítið inn í hringiðu flokksins og því er ömurlegt hvað titlingaskítur geta skemmt jafn mikið fyrir fólki eins og raun ber vitni. Þetta er alls ekki þessi virði.
Egóið er að drepa mig og því er varavarastaða ekki ásættanleg. Að gagnrýna valdaklíkuna er ekkert annað en pirringur yfir því að fá ekki að vera með. Æm tú breiskur for this sjitt - grenja bara þegar stóru strákarnir leyfa mér ekki að vera með.
Annars skiptir þetta engu máli - það eina sem skiptir máli er að Ásta Júlía er 4 ára í dag!!!!!