Name: Grímur

Monday, February 21, 2005

Sykurpúðar

"Hvnær kemurðu aftur fúleggjahommi?" - svona ortu menn þá. Í dag yrkja menn enn, þó mér þyki það ekki alltaf skemmtilegt.

Osló er ekki skemmtilegasti og heitasti staður veraldar. Enda eru þeir ekki með neinar svona "dirty weekend's" - bara svona ferkar straight allt saman. Það var þó mannamánuður á hótel Munch. Það var í boði að spila Play station á herbergi 210. Ég gerði það og fór í byssó við sjálfan mig og varð sjóveikur eftir að hafa horft í 10 mínútur á sjónvarpskjáinn - lá í klukkustund í rúminu eftir. Síðan las ég blaðið Vi menn sem er einhverskonar soft core Samúel - það er ekkert sérstaklega æsandi að hugsa um þannig blað....eða hvað? Vi menn var líka í boði hússins ásamt kókflösku. Þetta var mannamánuðurinn. Síðan kom ég heim og þá var auðvitað konudagurinn.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home